Ferill 156. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 773  —  156. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið,
nr. 34/1944, með síðari breytingum, (notkun fánans
við markaðssetningu á vöru og þjónustu).

(Eftir 2. umræðu, 27. janúar.)


1. gr.


    Við 8. gr. laganna bætist: sbr. þó 10. mgr. 12. gr. um eftirlit Neytendastofu.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:
     a.      Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Óheimilt er að nota fánann í firmamerki.
     b.      Í stað 3. og 4. mgr. koma fimm nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
             Heimilt er að nota hinn almenna þjóðfána í merki, sbr. þó 2. mgr., eða á söluvarning, umbúðir um eða auglýsingu á vöru eða þjónustu sé vara eða starfsemi sú sem í hlut á íslensk og fánanum ekki óvirðing gerð.
             Vara telst íslensk ef hún er:
                  a.      framleidd hér á landi úr innlendu hráefni að uppistöðu til,
                  b.      framleidd hér á landi í a.m.k. 15 ár undir sama vörumerki þótt hún sé framleidd úr innfluttu hráefni að stórum hluta eða öllu leyti; sama gildir um matvöru sem er framleidd hér á landi samkvæmt íslenskri hefð.
             Hönnunarvara telst íslensk ef hún er hönnuð af íslenskum aðila undir íslensku vörumerki þótt hún sé framleidd erlendis úr erlendu hráefni, enda sé ekki um að ræða hráefni sem er eðlislíkt innlendu hráefni sem telst hafa séríslenskan uppruna, einkenni eða eiginleika.
             Hugverk telst íslenskt ef það er samið eða skapað af íslenskum aðila.
             Neytendastofa veitir leyfi fyrir notkun þjóðfánans í vörumerki sem skal skrásetja hjá Einkaleyfastofunni.
     c.      Við bætast tvær nýjar málsgreinar sem orðast svo:
             Neytendastofa fer með eftirlit með notkun almenna þjóðfánans skv. 2.–9. mgr. Um málsmeðferð Neytendastofu, úrræði og viðurlög vegna brota á tilgreindum ákvæðum og um kærurétt til áfrýjunarnefndar neytendamála fer að öllu leyti eftir ákvæðum laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.
             Ráðherra sem fer með málefni neytendamála er heimilt með reglugerð að setja nánari ákvæði um skilyrði fyrir notkun fánans samkvæmt ákvæði þessu.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.